|
08.10.2006 13:33:13 / Lubbinn
Jæja þá er fyrsta vikan buinn hérna í borg óttans. Það er buið að
vera geggjað. þó að ég geti sagt að ég sakni smá vitleysinganna á
Dallas en ég kem einhvern tímann norður í heimsókn. Annars er nýja
vinnan draumur. Eg er að smíða einhvern turn upp á þaki á einhverju
húsi í borgartúninu niðri í bæ. Þetta er draumurinn hehhe. En þið
þarna fyrir norðan látiði heyra í ykkur. bæbæb
»
25.09.2006 17:54:10 / Lubbinn
Jæja það er mikið. Síðasti mánudagurinn í blika buinn þá eru
bara 4 dagar eftir. Þá Kannski hætti ég að vera eins og pirruð önd
sem fannst hinum megin við girðingu lífsins. ( vona að einhver
skilji þetta) . En annars var dagurinn ágætur sama og í gær ég bíð
spenntur eftir að hefja Nýtt líf annars staðar á þessu blessaða
landi sem er kennt við Ís.
En hugsið ykkur kæru lesendur hvað ef enginn gæti logið í þessum
heimi. Það yrði stórslys. Fólk myndi verða snargeðveikt svona eins
og Einar Pólski.
En klára þessa hugsun á morgun bæbæ
»
24.09.2006 22:17:11 / Lubbinn
Já góðir hálsar þá er ég byrjaður að blogga. Vegna
fjöldaáskoranna frá Gunnari Eiríks. Hehe. Annars er allt að gerast
hjá mér. Ég er að fara að flytja til borg óttans næstu helgi ef
allt gengur af óskum. Þannig að ég ætla að vera duglegur að blogga
svo einhver viti að ég er ennþá á lífi. En ég smátt nenni að blogga
núna. Ég er með hina frægu þynnku.
Veriði sæl börnin góð og muniði að líta til beggja hliða þegar
þig farið yfir götu
»
15.07.2006 15:51:23 / Lubbinn
JÁ ég fíla það að vera edrú  . 'i gær vorum við Hannes
bara að rúnta og brasa aðeins nirði á stöð. En það var svosem
ágætt. Það er samt lítið að gerast núna nema það að ég er kominn í
langþráð sumarfrí og er að fara til spánar Eftir 1 viku
En er að fara út bæbæ
»
13.07.2006 22:10:55 / Lubbinn
Halló
Það er allt crazy hjá mér núna sko. En helgin var snilld.
Hvernig finnst ykkur í Kef. Þessa setningu heyrði ég nokkuð oft um
helgina hehe. Ég og Einar vorum að djamma nefnilega í Keflavík og
það var drukkið ágætlega mikið. En annars er ég að fara til spánar
og í sumarfrí á morgun jess. Þá kemur bloggið alveg í hyllingum
bless í bili
»
06.07.2006 22:56:21 / Lubbinn
Nú ætlum við Einar( The model) að skella okkur suður um helgina
á Írska daga á Akranesi og hella okkur fulla og vitlausa. Það er
ekkert nýtt hjá okkur en eins og kindinn sagði nokia is a
problem. En það er allt önnur saga. En við brunum strax eftir vinnu
á morgun til Rvk þar ætla ég í svínakjöt til Ömmu Valdísar og svo
ætlum við að rúnta á Akranesi á föstudagskvöldið. Laugardagurinn
verður aðeins fróðlegri þá ætla ég að skella mér í brúðkaup hjá
Sveinbirni frænda og Sigrúnu og svo eftir veisluna skellir maður
sér bara í djamm gallann og sólgleraugu og fer upp á skaga. En ég
blogga þegar ég kem heim.
Hugsun dagsins.
Ef fólk gæti ákveðið örlög sín hvernig væri þá spennan á milli
pólanna? Væri ekki allt öðruvísi. Þið skiljið maður hittir stelpu
sem maður verður hrifinn af og on it goes if u know what i mean en
samt þá gerist það aldrei. Það finnst mér mjög leiðinlegt og þá get
ég bara sagt shit happens. En muniði vinur er vinur vina sinna og
ekki við að hjálpa þeim ef þið getið.
»
04.07.2006 18:51:16 / Lubbinn
Fann en samt týndi þetta er svar og spurnig sem er buið að
skella saman og hrista eins og siginn brjóst. En annars var
dagurinn góður í dag. Ég og Jónas Þonn skelltum okkur í ræktina og
tókum helvíti vel á eins og á að gera gott fólk. Svo styttist alveg
svakalega í spán össs. Maður er byrjaður að bera sólarolíunna á sig
og spóka sig á naríunum á sólpallinum hjá gömlu í von um að fá smá
tan. hehe
En ætla að fara að borða eitthvað og svo who knows
bæbæbæ
»
03.07.2006 15:45:43 / Lubbinn
Já kjellinn skellti bara sér inn í bíl og setti fótinn á bensínið
og keyrði suður. Það gekk samt illa á pörtum. Það var ömurlega
mikil umferð og svo dottaði ég nokkrum sinnum á milla Blöndós og
Staðarskála. Það var sæta málið ég var orðinn dauðþreyttur og
ruglaður. En sem betur fer fékk ég mér að borða í Staðarskála og
þambaði orkudrykk eins og svangur túristi. Svo hitti ég Sigga
frænda þar og við urðum samferða restina þó að ég hafi skilið hann
eftir á Holtavörðuheiðinni. En sov hægði ég á og þá náði hann mér
aftur. Annars var snilld fyrir sunnan og ég ætla að skella mér
aftur suður.
»
29.06.2006 19:03:01 / Lubbinn
Jæja nú ætlar karlinn að pakka saman undirhökunni og setjast upp
í bíl og slá öll hraðamet á garðsskagavita. Þið heyrðuð rétt. ÉG er
að fara til Reykjavíkur. ÍIIIIHAA Það verður geggjað marr. Ég
hlakka svo til að það er rosalegt. Ég samt ekki alveg hvað ég geri
en ég ætla 100% að hitta Elmu sem verður snilld en ég er að fara að
ná í bílinn minn. Tata
Bless í bili cheeky monkeys
»
26.06.2006 19:27:46 / Lubbinn
Helgin var snilld. Það er sjaldan sem maður hefur skemmt sér
svona vel. Bóbó (Þorvaldur) Fór á kostum á laugardagskveldið það
var rosalegt maður. En mér datt þessi snilldar hugmynd að fara
þunnur að þrífa í frystihúsnu. Það var óbjóður og helbjóður. hehe
'eg var að steindrepast allan tíman og svo var ég svo feginn þegar
ég fékk mér vodka og coke um kveldið.
En þetta er gott í bili. Er að spá í að fara suður um helgina
adios amigos
»
22.06.2006 23:49:57 / Lubbinn
Jæja þá bloggar karlinn og líka kominn tími til.
Annars er lítið að gerast ég er bara að deyja úr spenningi við
að komast til spánar. 'eg get ekki beðið. Í kvöld fékk Einar þá
snilldar hugmynd að draga mig með í einspark og sá sem tapaði átti
að beygja sig og fá nokkur skot í rassinn. Og viti menn nokkurum
marblettum seinna þá sit ég hér á klaka og það er geðslega. Ég á
ekki eftir að sofa neitt í nótt útaf þessu helvíti.
Einspark er rosalegt maður og kona
»
18.06.2006 21:00:55 / Lubbinn
Jæja nú er karlinn að fara að hella sér í bílaviðskipti ég á golf
og range rover sem ég myndi vilja losna við sem fyrst. Ef einhver
hefur áhuga eða veit um einhvern sem vantar bíla má hann endilega
láta mig vita.
»
17.06.2006 20:12:11 / Lubbinn
Hvað segja bændur eru ekki allir bunir að pressa buxurnar og
strauja skyrturnar? 17 líður hratt. 'eg er buinn að vera á fullu í
dag með slökkvuliðinu og annað. Samt er ekkert buið að vera að
gerast síðustu daga nema það að ég og Jonni erum byrjaði að pumpa
aftur lóðum og taka á því. En kvöldið er eftir hann Þorvaldur(Bóbó)
vinur minn er hjá mér og eins og venjulega ætlum við að bralla
eitthvað í kvöld.
En er að fara að borða bæbæ
»
14.06.2006 23:30:10 / Lubbinn
Ég var að fá snilldar fæðubótar efni. Red kick það er svona orku
drykkur og eitt glas af honum virkar eins og 2 bollar af kaffi.
Þannig að kallinn´ætti að vera til fyrir spán Íhhhhhhhhaaaaaaaa. En
Jonni og böbbi koma hjem á morgun og það er snilld. Það hefur
vantað þá undan farna daga en ætli þeir sakni mín þegar ég fer til
spánar??? Það er spurning sem ég get ekki svarað en kemur í ljós
þegar að því kemur
»
12.06.2006 21:07:14 / Lubbinn
Góða kvöldið.
Fyrst vil ég óska Jonna til hamingju með afmælið í dag.
'i dag er offical ömurlegur dagur í dag þurftum við að vinna
uppáhaldið mitt eða þannig ufsa ojjjj bara. Hann er vibbi þegar
maður er að vinna hann vildu maður frekar vera að láta vaxa á mér
punginn með kertavaxi grrr. En ég er að fara að reyna að leggja mig
og ´fa smá fegurðarblund bæbæbæ
»
Síður: 1 2
|